Valli og co
06.11.2006 19:45:47 / Brynja

Djöf... leti:(

SORRY. Er bara að deyja úr bloggleti:( Ég bara nenni þessu ekki, þið verðið bara að fyrirgefa mér. Ekki er það út af því að ekkert sé að gerast vegna þess að það er búið að vera nóg að gerast. Gæti bara verið einhver svona skammdegisleti, æ þið vitið hvað ég meina.

Alla vega það hefur ýmislegt drifið á okkar daga hér á Laufvangnum. Valli er búinn að vera á fullu í prófkjöri Samfylkingarinnar, var að vinna fyrir Gunnar Svavarsson, sem nota bene vann:) Til hamingju með það Gunni;) Svo er ég búin að vera í félagsmálum Sörla, aðalfundur og soleiðis og svo fórum við Valli á Landsþing hestamannafélaga í Borgarnesi og vorum yfir heila helgi, barnlaus. Það var voða fínt, en samt æðislegt að koma heim og knúsa litlu dúlluna mína. Af henni Hildi Jónu er bara allt fínt að frétta, bara unir sér vel í leikskólanum og er byrjuð að tjá sig helling, samt er rosalega margt "mamma". Það er rosalega sætt en á sama tíma pínu pirrandi. Valli er náttúrulega alltaf að reyna að fá hana til að segja pabbi en það hlýtur bara að fara að koma.

Af lóðarmálum er ekkert að frétta. Ekki ennþá búin að fá afhent þannig að guð má vita hvenær við flytjum inn í þetta blessaða hús okkar:!:

Svo var Vala vinkona og Raggi að skíra prinsinn sinn. Gissur Steinn heitir hann. Gissi alveg að springa úr gleði þegar hann heyrði hvað prinsinn ætti að heita og felldi nokkur tár og án gríns var ekki þurrt auga í salnum, þetta var yndislegt móment. Það er nú ekki oft sem maður sér svona stóran mann fella tár. (Þið sem vitið ekki hver Gissi er þá er hann sem sagt pabbi Völu vinkonu, Gissur Guðmundsson lögga)  Alla vega innilegar hamingjuóskir til ykkar Vala og Raggi. Hann er bara flottur strákur8)

Jæja mér sýnist eitthvað vera rætast úr þessari leti. Núna held ég að það væri þjóðráð að vera ekkert að lofa því að vera dugleg að blogga bara að sjá til. En alla vega ég ætla að reka á eftir Valla að setja inn myndir sem fyrst. Allir Sáttir!!

Adios amigos


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.09.2006 18:55:54 / Brynja

Nú er það rautt!

Halló aðeins að missa mig í litavalinu. Hva mar má nú aðeins fikta. Ég var eiginlega orðin svolítið þreytt á gamla lúkkinu. Sísí mín með allri virðingu fyrir fjólubláa litnum (sísí vinkona valdi sko litinn):)

Herru það er bara svaka stuð í leikskólanum og mar bara alveg að meika það. Það er bara strax smá djamm með vinnunni. Við erum að fara í sumarbústað á föstudaginn, brjálað fjör. Mín ætlar að taka SingStarið með og meika'ða feitt:!:

Já svo eru mæðgurnar, mamma og Stína Stuð að fara til Dublin um helgina, ekki er mér boðið með. Soldið sár en það er líka eins gott að þær kaupi eitthvað gullfallegt handa mér. Já og sykurpúðanum henni Hildi Jónu. Sem er hrókur alls fagnaðar á Norðurkjarna (deildin hennar í leikskólanum). Hún var veik í tvo daga í síðustu viku og það var bara svaka rólegheit á deildinni þá. Engin til að elta og soleiðis gaman:D

Alla vega þannig að það verður brjálað stuð um næstu helgi og Valli bara heima með snúlluna sína. Æ þau eru svo sæt saman að hálfa væri nóg fyrir utan það að Valli er alltaf að kenna henni að gera eitthvað sem hún á ekki að vera að gera. En svona er það nú bara. Jæja þetta er ágætt í bili ég læt í mér heyra fljótlega, adios;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

19.09.2006 18:54:09 / Brynja

Í leikskóla er gaman!

Góða kvöldið gott fólk:) Mikið rosalega er ég dugleg að blogga.Finnst ykkur ekki? Segi svona. Ég er búin að vera á leiðinni að blogga núna í smá tíma og segja ykkur hvernig mér líkar vinnan en ég er bara svo búin á því þegar ég kem heim úr vinnunni að það er ekki einu sinni fyndið. Náttúrulega alveg nýtt áreiti, hávaði og soleiðis. Nýtt fólk og nýjar reglur. Skiljanlegt að maður verði í einhvern smá tíma að ná sér á réttan kjöl. En annars er þetta mjög skemmtilegt. Ég er sko alveg að fíla þetta. Reyndar er ég ekki búin að fá útborgað, það segja víst allir að ég eigi eftir að fara að gráta. En það verður bara að hafa það. Ég er nú búin að vera að taka nokkrar vaktir á Kenny. Alla vega ég er sem sagt að vinna með eldri hlutanum(krökkunum) af leiksskólanum, væntanlega var ég sett þangað svo að ég myndi ekki hitta Hildi Jónu oft. Þetta eru svaka fínir krakkar, soldið erfiðir en maður harkar þetta af sér. Bara lætur ekki vaða yfir sig. Og ég held að skvísurnar á Vesturkoti séu bara þokkalega ánægðar með mig, ekki skrýtið:) Svo gengur Hildi Jónu svaka vel líka. Alveg hætt að gráta á morgnana þegar ég fer með hana og eiginlega orðið alveg sama þegar ég hitti hana á útisvæðinu. Sem er bara frábært. Sem sagt bara gaman í vinnunni.:)

En nýjar fréttir eru þær að Vala vinkona og Raggi kærastinn hennar eru búin að fá prinsinn sinn í hendurnar. Hann kom í heiminn á laugardagsmorgunn um 5leytið. Hann vó 17merkur og var 53cm. á lengd. Innilegar hamingjuóskir með drenginn, Vala og Raggi. Hlakka til að sjá hann;)

Já svo er það bara að Mömmu, Pabba og Stínu líður svaka vel í bráðabirgðaíbúðinni sinni, Gimli(staðurinn heitir það). Stína vill meina að þetta sé hobbitaíbúð og kallar nú sjálfan sig Stína Baggins en ég veit nú ekki alveg með það.

Það styttist alltaf í að við förum að byggja. Valli sagði mér bara síðast í gær að við myndum byrja að grafa í enda september. Þannig að það er allt að verða crazy hjá fjölskyldumanninum:P En bara spennandi. Annars er allt mjög gott að frétta af okkur öllum. Ég læt nú heyra í mér aftur fljótlega, kannski bara þegar ég er búin að fara að kíkja á prinsinn hjá Völu og Ragga. Þangað til bæbb;) 


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.08.2006 19:36:18 / Brynja

Ný vinna!

Já eins og ég minntist á þá er ég hætt á KFC8| Ég veit að það er erfitt fyrir suma að trúa því en svona er það bara. Segi svona. Ég er sem sagt að fara að vinna á leikskóla, Vesturkoti (uppá holti á móti golfvellinum). Ég byrja á föstudaginn og ég er bara svaka spennt. Ég held að þetta eigi eftir að verða svaka skemmtilegt. Mikil vinna en skemmtilegt. Einn mjög góður kostur við þetta er að Hildur Jóna fékk inngöngu í Vesturkot mín vegna og byrjaði á mánudaginn. Og það gengur eins og í sögu. Það verður leiðinlegt að missa Siggu (dagmömmu) en við verðum örugglega duglegar að fara í heimsókn. Þetta er nú stærsta fréttin.

Svo er það annað, mamma, pabbi og Kristín voru að flytja í vikunni. No more Breiðvangur 62:cry: Mjög leiðinlegt en svona er þetta bara. Reyndar mjög leiðinlegt að nýja íbúðin þeirra er ekki nærri tilbúin þannig að þau þurftu að redda sér bráðabirgðaíbúð. En þau eiga svo góðann að, Sævar Leifsson góðvinur þeirra/okkar (pabbi Vöku frænku) reddaði þeim íbúð á Gimli (húsið þeirra á Álftanesvegi). En ég á eftir að sakna Breiðvangsins mikið og ekki skrýtið flutti þangað þegar ég var 6ára. But life goes on.

Svo er nú ekkert svo langt þangað til að ég, Valli og Hildur Jóna flytjum sjálf. Við megum byrja að grafa 8.sept. minnir mig. Við erum að sjálfsögðu búin að ákveða húsið og er það núna í teikningu hjá arkitekt. Þetta er allt svaka spennandi og það verður nóg að gera hjá okkur í vetur.

Annars er allt fínt að frétta af okkur. Hildur stækkar og stækkar og er núna alveg farin að hlaupa og klifra og ég veit ekki hvað. Gerði mér til dæmis lífið leitt í dagmömmufríinu:) Segi svona. Það var bara gaman. Valli bara alltaf að vinna og bráðum ég líka. Annars er bara vika síðan ég hætti.

Ég er nú að reyna að muna eitthvað slúður man lítið. Jú Vala vinkona fer nú alveg að eiga litla strákinn sinn. Gangi ykkur vel Vala og Raggi:)  Svo voru Dröfn og Jói Píp að skíra um helgina, traust og gott nafn fékk hann Trausti;)  Til hamingju með það. Nína vinkona er að fara af landi brott og hefur ákveðið að fara til Danaveldis, Góða ferð Nína mín og Breki og gangi ykkur vel í Danmörku. Ég man ekki meira í bili en um leið og eitthvað kviknar þá hendi ég því inn, ég lofa.

Jæja þetta er nú orðið aldeilis gott hjá mér. Að lokum vil ég bara óska Hönnu vinkonu til hamingju með bróðir sinn og gaman að sjá þig og vonandi sé ég þig áður en þú ferð út aftur og svo bara ÁFRAM MAGNI:haha:

Adios amigos


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.08.2006 18:05:52 / Brynja

Ekki dauð!!!

Bara að láta ykkur vita að við erum ennþá hérna. Bara búið að vera soldið mikið að gera hjá okkur. SORRY:(

Ég er að fara að byrja í nýrri vinnu núna bráðum þannig að ég hef góðan tíma í vikunni til að blogga og segja ykkur hvað við erum búin að vera að stússast. Þangað til þá ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.07.2006 21:37:15 / Brynja

Glötuð!!!

Vá ég er ekkert smá glötuð í þessu blessaða bloggi. Nú er ég hætt að lofa svona upp í ermina á mér. Núna geri ég bara mitt besta:lol:
Alla vega það er allt fínt að frétta af okkur hérna á laufvangnum. Landsmótið var frábært í alla staði nema ég saknaði Valla og Hildar alveg rosa mikið. Þetta endaði sem sagt með því að ég fór á laugardeginum fyrir mótið og Valli var bara heima á meðan og kom ekki fyrr en á fimmtudeginum og Hildur Jóna var bara í pössun hjá tengdó á meðan. Þau þurftu að fresta Afríkuferðinni sinni:(
Þetta var svaka stuð en maður kom heim gjörsamlega búin á því. En maður er nú alla vega búin að ná sér núna.  Maður bara dembdi sér bara í vinnu og annað slíkt. Núna reyndar er ég að fara í mánaðarfrí, þ.e. Sigga dagmamma er að fara í frí. Þannig að ég og Hildur ætlum að hafa það notalegt bara tvær á daginn. Vera duglegar að labba og soleiðis. Nú er bara málið að ræsa vinkonurnar með börnin og drífa sig að hittast:)
Ji það var svaka gaman um síðustu helgi. Þá fórum við í Húsdýra-og fjölskyldugarðinn með tengdó, Sigga og Völu og Stebba og fjölskyldu(elsti bróðir Valla og Sara konan hans og Vala litla og Tommi litli). Það var svakalega gaman. Grilluðum pylsur og fórum hin og þessi tæki, t.d. þá keyrði Hildur Jóna rafmagnsbíl alveg ein. Ég ætla einmitt að setja inn myndir frá þessum skemmtilega degi.
Ég ætla láta þetta duga í bili og gera svo mitt besta að halda þessu við;)
Ég segi þá bara adios í bili.      
Brynja bloggari8)

» 5 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 12:59:51 / Brynja

Mar er bara mættur

Komið þið öll blessuð og sæl:) Bloggarinn mikli er mættur á ný. Segi svona. Ég er ekki alveg búin að standa mig nógu vel upp á síðkastið. En ég er komin til að bæta úr því. Það hefur ýmislegt verið að gerast hjá fjölskyldunni á Laufvangi 1. Nú fyrir það fyrsta þá er það heilsan. Hún hefur ekki verið upp á marga fiska hjá okkur mæðgunum. Eyrnabólgupest hjá Hildi Jónu og hálskirtlarnir að stríða mér. Það er einmitt á dagskránni í dag að hringja og panta tíma hjá háls-nef-og eyrnalækni fyrir okkur báðar. Og þessi veikindi hennar Hildar eru náttúrulega að setja stórt strik í landsmótsreikninginn. Planið var að vera náttúrulega allan tímann með ungfrúnna en það er nú eitthvað að breytast og er eiginlega allt í lausu lofti. Sem er mjög leiðinlegt þar sem ég er liðstjóri Sörla og verð hreinlega að vera þarna allan tímann. Þetta mun nú vonandi leysast sem fyrst. Já og Kristín systir komst að sjálfsögðu á landsmótið með hann Jökul sinn. Til hamingju Kristín, vel gert.

 Já svo er alltaf að bætast í vinahópinn. Jói og Dröfn eignuðust gullfallegann dreng 16.júní. Hann var stór og myndalegur 17,5merkur og 55cm. Við óskum þeim að sjálfsögðu innilega til hamingju

. Svo voru þau Arnbjörg og Hilmar að láta pússa sig saman um helgina á sautjándanum og vorum við að sjálfsögðu þar. Svakalega fínt og óskum við þeim alls hins besta í framtíðinni .

 Svo í dag á hún Brynka Snor afmæli. Til hamingju með daginn Bryndís mín. En nafna hennar hún Bryndís Kolbrún er búin að vera í einhverju basli við heilsuna og er búin að vera í rannsóknum og ég veit ekki hvað. Elsku Bryndís okkar láttu þér nú batna. Við sendum þér baráttukveðjur

 Á laugardaginn sjálfan þjóðhátíðardaginn eignaðist Hildur Jóna sinn fyrsta hest. Merin okkar hún Hetja kastaði bleiku merfolaldi undan Kolskegg frá Oddhóli. Þannig að hún er komin í bransann, segi svona. Nú þarf bara að finna nafn. Ég er búin að henda nokkrum myndum af græjunni. Jæja ég held að þetta sé nú alveg nóg í bili. Núna þarf ég bara að komast í blogggírinn aftur. Þangað til næst bæbbb


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.05.2006 21:15:40 / Brynja

nýjar myndir:)

jæja loksins komu nú nýjar myndir á þessa blessuðu síðu. Þetta eru rosa fínar myndir af henni Hildi Jónu um páskana og eitthvað soleiðis, myndir frá afmælinu koma von bráðar. Reyndar eru sumar myndirnar ekki upp marga fiska vegna lélegrar myndavélar. Ég og Valli þurfum nauðsynlega að kaupa nýja myndavél. Alla vega það eru komnar myndir:lol::lol: jibbý!!
Við vorum rétt í þessu að koma heim úr sumarbústaðaferð, vorum með kfc starfsmönnum, vaktinni minni. Vorum níu saman og það var svakalegt stuð. Hildur Jóna var hjá ömmu og afa á breiðvangnum á föstudeginum og fór svo til ömmu og afa á brunnstígnum á laugardeginum. Og að sjálfsögðu gekk það eins og í lygasögu. Reyndar er skvísan orðin veik þannig við mæðgurnar verðum bara heima á morgun.  Látum í okkur heyra fljótlega aftur, bæjó spæjó;)

» 6 hafa sagt sína skoðun

08.05.2006 09:27:17 / Brynja

Svaka fín veisla

Jæja veislan gekk með eindæmum vel. Fengum þetta líka draumaveður, þó svo að það hafi dregið fyrir sólu8) Við grilluðum á pallinum hjá tengdó, pylsur og tilheyrandi. Svo að sjálfsögðu þarf að vera afmæliskaka og kerti. Við klikkuðum ekkert þar og það var sunginn afmælissöngurinn og Hildur blés á kertið(eða Valli feikaði það vel). Við viljum þakka öllum fyrir afmælisgjafirnar, frábært alveg hreint og bara takk fyrir frábæra afmælisveislu:)

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.05.2006 22:43:29 / Brynja

Hún á afmæli í dag:)

1árs. Vá hvað tíminn flýgur. Hildur Jóna er orðin 1árs. Til hamingju með daginn elskan mín:lol: Við verður með smá veislu á morgun og eftir það ætla ég að henda inn myndum af henni Hildi ársgamalli, labbandi og allt. Þið verðið þá að kíkja á það. Ég vil nota tækifærið og óska einnig Ísabellu Nótt til hamingju með daginn (líka 1árs, tveimur tímum eldri) og svo á hún Krista Sól afmæli 10.maí. Til hamingju stelpur:)

» 2 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 19:25:02 / Brynja

It's alive!!!!!!!!!!!!

Halló halló jújú við erum hér ennþá:lol: Afsakið þessa leti í mér. Mar bara eitthvað svo þreyttur eða eitthvað soleiðis. Alla vega það er allt fínt að frétta af okkur. Hildur stækkar og stækkar og já viti menn hún er byrjuð að labba. Labbar út um allt, ég og Valli með hjartað í buxunum. Svo er náttúrulega ekkert óvenjulegt að barnið sé með kúlu hér og kúlu þar vegna þess að hún á pottþétt eftir að vera fjallgöngukona miðað við allt saman. Hún klifrar á öllu og er alveg svakalega sterk í höndunum, menn hafa bara ekki séð annað eins. Sterk og stór eins og pabbi sinn;)
Já ég vil nota tækifærið og óska henni Sísí vinkonu minni til hamingju með giftinguna um daginn, 8.apríl. Ég fékk bara sms um daginn og þar tjáði hún mér það að hún væri gift honum Umit í Tyrklandi. Jamm og jæja segir mar nú bara. Þvílíkt suprise bara. Alla vega, þá óska ég þeim alls hins besta í framtíðinni. Auk þess þá átti Sísí vinkona afmæli á mánudaginn var, 24.apríl. Til hamingju með afmælið eskan mín.
Þetta var nú aðal slúðrið hjá mér að þessu sinni. En ég er náttúrulega ekkert búin að blogga síðan ég fór til London. Það var nú aldeilis gaman. Verslað og verslað og svo var bara brjálað stuð. Vodki í Red Bull var málið og café de Paris.(klúbbur sem við fórum á-Geðveikur).
Jæja ég ætla að láta þetta duga í bili en ég læt ekki líða svona langt í næsta ég lofa:S
Bæjó

» 2 hafa sagt sína skoðun

31.03.2006 04:40:05 / Brynja

"London calling"

Jæja nú eru akkúrat 10 mínútur þangað til að ég verð sótt. Og leiðin liggur á flugvöll Leifs Eiríkssonar. Langaði bara að kasta kveðju á alla. Bless bless og vonandi eigið þið góða helgi alla vega verður mín það. Jibbý, goodbye.

» 3 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 12:15:59 / Brynja

LONDON BABY!!!!!

Jæja nú styttist heldur betur í London ferðina mína. Jibbý. Já og svo eins og einhverjir muna þá á ég afmæli á laugardaginn. Oh my god the big 27:$ How time flæs. djísus. Já þannig að þeir sem vilja gefa mér einhverja gjöf þeim er vinsamlegast bent á að fjárframlög eru vel þegin.Híhí:D Segi svona. Þetta verður svaka stuð og haldiði þið að Hildur Magnúsdóttir mín fína samvaktarkona og góð vinkona hafi ekki ákveðið að skella sér með okkur. Nú má sko London vara sig. Við verðum frekar flottar ég, Birna og Hildur. Þannig að kallinn verður bara einn heima um helgina með litlu dúlluna sína. Þau ætla bara að dunda sér eitthvað og slappa af á meðan kellan er ekki heima að tuða og nöldra yfir hinu og þessu8)

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.03.2006 09:26:32 / Brynja

Endalaust veik

Já endalaust veik, alltaf er það eitthvað. Ég er búin að vera meira og minna veik frá áramótum, æðislegt, Gríp allar pestir. Að þessu sinni er það kirtlasýking, æ svona strepto eða hvernig sem maður skrifar þetta. Óþolandi:( En maður verður víst að taka þessu, það sem skiptir nú meira máli er að Hildur Jóna er öll sú hressasta.

Já og svo virðist sem allir séu að fara eða koma. Þá meina ég útlönd. Valli nýkominn frá Danmörku, Vala tengdó nýkomin frá Namibíu, Amma Binna kemur frá USA í dag og Mamma og Pabbi fóru til Kúbu í gærkvöldi. Svaka hasar. En svo er ég að fara til London um mánaðarmótin og ég get ekki beðið:haha: Það verður sko gaman. Er ekki að fara til að versla. Nei í þetta sinn (hef sko farið tvisvar áður í boði KFC) ætla ég bara að skoða og slaka á. Þetta verður æði.

Annars er allt voða rólegt hér í Norðurbænum (oh my god, þín verður sárt saknað). Allt bara fínt að frétta fyrir utan streptoinn.:S

Alla vega biðjum að heilsa að sinni, bæjó


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.03.2006 15:41:06 / Brynja

Hnoðravellir 28

Jæja þetta verður víst nýja heimilisfangið okkar: Hnoðravellir 28. Hljómar vel, ekki satt?? Við erum alla vega í skýjunum yfir þessu:haha: Við bjuggumst ekki við því að fá við þessa götu en það hafðist. Þá verður bara allt sett á fullt, að teikna og hanna og eitthvað soleiðis. Þetta verður svaka stuð.

Svo var ég að tala við Siggu Píp, tilvonandi dagmömmu Hildar Jónu. Hún getur tekið hana um mánaðarmótin. Við alveg svaka ánægð með það. Ekki það að mér finnist ekki frábært að vera heima með Hildi þá er bara svo leiðinlegt að geta bara unnið kvöld- og helgarvaktir á Kenny, þannig að ég er svaka ánægð að hún sé laus.:)

Jamm og jæja þannig að það er allt á fullu hjá okkur en bara gaman.;) Nýjar myndir komnar í linkinn Hildur 0-10 mán. Frá því þegar Valli fór til Danmerkur og svo eitthvað hérna heima af Hildi.


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6